Nemendur fengu bréf til heimilana í töskur sínar (sumir í gær, aðrir í dag). Þar koma fram upplýsingar um það sem er á döfinni næstu daga og vikur í skólastarfinu. Flest kemur þetta líka fram á viðburðardagatalinu hér til hliðar en í bréfinu eru auðvitað ítarlegri upplýsingar en þar koma fram. Hér kemur snöggsoðin stutt útgáfa af því helsta sem er í bréfinu:
- Eflingartímar byrjuðu í þessari viku og eru á sama tíma eins og fyrir áramót.
- Þorrablótið er á fimmtudagskvöldið og þarf að skila skráningarblaði inn fyrir þriðjudag.
- 20. janúar er ekki hefðbundin skóli því það eru foreldraviðtöl (sjá aftan á bréfinu).
- Miðvikudagurinn 25. janúar er tvöfaldur skóladagur og verður farið í ferðalag.
- Árleg skólabúðaferð níundu bekkinga á Lauga í Sælingsdal er í byrjun febrúar.
- Skíðaferðalag frestast frá því sem kemur fram á skóladagatali.
Eins og þið sjáið eru þetta nónokkur atriði svo vonandi skila bréfin sér uppúr töskunum heima svo að allir séu vel inni málunum.

