· Innkaupalistar
fleiri tilkynningar...





 

16. október 2009

Myndir úr Fornleifaskólanum

Sophia með hrafntinnuflögu
Nú eru komnar myndir í vefalbúm Litlulaugaskóla frá vinnustofum sem Fornleifaskóli barnanna stóð fyrir í Litlulaugaskóla helgina 3. – 4. október sl. Þar mættu á laugardeginum 9. og 10. bekkur og nutu leiðsagnar Dr. Sophiu Perdikaris,  Dr. Edith Gonzalez de Scollard og Dr. Reginald Murhpy sem öll eru fornleifafræðingar. Auk þeirra voru á staðnum Þóra Pétursdóttir fornleifafræðingur, Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur og starfsmaður Fornleifaskólans, Unnsteinn Ingason, Baldur Daníelsson og Pétur Ingólfsson en þeir Unnsteinn, Baldur og Pétur sitja allir í stjórn Fornleifaskóla barnanna.

Nemendur spreyttu sig í því með aðstoð Sophiu að búa til skurðáhöld í fornum stíl með því að höggva flögur úr hrafntinnu og beittu þeim síðan á mismunandi efnivið. Öll áhöld voru vegin og mæld og skoðuð nákvæmlega í víðsjá fyrir og eftir notkun til að kanna áhrif notkunarinnar á þau.

Edith sýndi nemendum gömul bréf frá Barbuda í Karíbahafi skrifuð með fjaðurstaf sem notuð hafa verið í sögulegri fornleifafræði og sumir prófuðu að skrifa með fjaðurstaf sem tálgaður var til á staðnum úr gæsafjöður og að sjálfsögðu var það gert með flugbeittri flögu úr hrafntinnu! Hún ræddi einnig við þá um munnmælasögur og skráningu munnlegra heimilda, en það tengist verkefni um skráningu á örnefnum í heimabyggð sem nemendur munu taka þátt í á vegum Fornleifaskólans. Í það verkefni mun nýtast tækjabúnaður sem Sophia færði Fornleifaskólanum af þessu tilefni með styrk frá Bandaríska vísindasjóðnum; gps-tæki, stafrænar myndavélar og vídeóupptökuvél.

Í lok vinnustofunnar sagði Dr. Reginald Murphy nemendum frá sér, starfi sínu og heimkynnum en hann er frá eyjunni Antigua í Karíbahafi.

Sunnudaginn 4. október var vinnustofa fyrir nemendur í 5. – 7. bekk. Fyrra viðfangsefni þeirra var að losa í sundur ugluælu sem Sophia kom með. Ugluæla er lítill köggull, aðallega úr hárum og beinum af þeim dýrum sem uglur veiða sér til matar. Uglan hefur tvo maga og meltir það sem hún getur af bráðinni  í öðrum en ælir hinu frá sér aftur það sem eftir er fer í hinn magann þar sem meltingin heldur áfram. Fornleifafræðingar rannsaka svona köggla sem finnast í fornleifarannsóknum og leita þannig að vísbendingum um lífríkið á þeim tíma. Nemendur fundu bein af ýmsu tagi í þessum kögglum og skoðuðu þau vel undir stækkunargleri og víðsjá auk þess sem þeir flokkuðu þau eftir gerð; bæði eftir tegundum og líkamshlutum.

Edith sýndi þessum hópi einnig gömlu bréfin og sagði þeim frá því að þau hefðu verið skrifuð með fjaðurstaf. Hver nemandi fékk sinn fjaðurstaf úr gæsafjöður og prófaði að skrifa nafnið sitt á blað til að fá tilfinninguna fyrir þessu verkfæri. Nemendur skrifuðu einnig spurningu á blaðið til nemenda í Barbuda í Karíbahafi en þangað mun Edith fara með bréfin og fá svör hjá nemendum sem eru í verkefni þar ekki ósvipuðu Fornleifaskóla barnanna.

Óhætt er að segja að vinnustofurnar hafi gengið vel og nemendur hafi notið þess að starfa með þessum frábæru vísindamönnum.

ping


til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 


fréttayfirlit



 
 
18. ágúst 2010
Skólasetning Litlulaugaskóla
12. júní 2010
Skólaferðalag 9. og 10. bekkjar
2. júní 2010
Skólaslit
fleiri fréttir...


SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
<September 2010>

 
    Litlulaugaskóli   |    kt. 681088-4239   |    650 Laugar   |    Sími 464 3166   |    postur@litlulaugaskoli.is