Kristrún Kristjánsdóttir umsjónarkennari 9. bekkjar er farin í fæðingarorlof. Járnbrá Björg Jónsdóttir hefur tekið við umsjón með bekknum hennar og þar með kennslu í lífsleikni í 8.-9. bekk á fimmtudögum. Að öðru leyti skiptist kennsla Kristrúnar fram á vorið niður sem hér segir:
Cornelia tekur við ensku í 5. bekk.
Járnbrá Björg tekur við íslensku í 5. bekk og vinnustofu hjá 8.-9. bekk á þriðjudögum.
Guðrún Sædís tekur við ensku og dönsku í 6.-7. bekk og 8.-9. bekk.
Baldur tekur við samfélagsfræði í 8.-9. bekk.
Aðalsteinn Már tekur við vinnustofu hjá 6.-7. bekk á mið. og 8.-9. bekk á föstudögum.
Búið er að kynna þessar breytingar fyrir nemendum og dreifa til þeirra nýjum stundaskrám.