Fréttabréf Krílabæjar fyrir aprílmánuð er nú loksins aðgengilegt hér á vefsvæði skólans. Það er fyrir löngu búið að setja það í hólf nemenda í skólanum og sjálfsagt komið upp á ísskáp á heimilum þeirra flestra. En þó liðið sé á mánuðinn þá eru þetta ekki allt eintóm úrelt tíðindi. Í bréfinu eru nokkrar vinsamlega ábendingar til foreldra varðandi aukaföt og opnunartíma en auk þess eru nokkrir sérstakir dagar seinni hluta mánaðarins sem best er að reyna að muna eftir – þeir hafa reyndar líka verið settir inn á viðburðardagatalið hér til hliðar.