Einhverjir foreldrar hafa sjálfsagt upplifað það að finna sjálf eða fá í hendurnar frá barninu sínu samankrumpað gamalt bréf úr töskunni. Það gleymist stundum að athuga hvað leynist í skólatöskunni og börnin muna ekki alltaf eftir því sjálf þegar þau hafa verið beðin fyrir eitthvað heim. Í þessari viku fengu börnin bréf með sér heim en það gleymdist nú alveg að geta þess hér – fyrr en nú. Það kom ekki í veg fyrir það að allir nemendur í 2.-5. bekk mættu á samverustund í gærkveldi. Þangað kom líka töluverður hópur nemenda í 1.-5. bekk Hafralækjarskóla og Stjórutjarnaskóla. Það var mikið dansað, spilað, hlaupið og spjallað. Nemendafélagsstjórnin stjórnaði leikjum og dönsum og nemendur úr 9. bekk seldu gos og sælgæti á lágu verði. Ekki varð annað séð en að allir skemmtu sér vel.
Inn í mitt umrætt bréf smygluðum við inn auglýsingu frá Ungmennafélaginu Eflingu þar sem fram kemur að nú er verið að kaupa æfingagalla. Til að kaupa galla er best að mæta fyrst og máta og það er í boði í dag, fimmtudaginn 15. mars milli 17 og 18 í vallarhúsinu.
Enn eru rétt rúmar tvær vikur í árshátíð skólans en hennar er engu síður aðeins getið í bréfinu enda undirbúningur kominn í fullan gang. Er óskað eftir aðstoð frá heimilum við að útvega fatnað í búninga og vonumst við til að vel verði tekið í það. Nær í tíma er Grunnskólamót Framhaldsskólans á Laugum fyrir 7.-10. bekk, en það er á morgun, föstudag. Allir geta komið, horft á og hvatt nemendur okkar áfram til sigurs (þó hér sé auðvitað fyrst og fremst verið að gera þetta til að hafa af því ánægju og gaman). Keppni hefst uppúr 13 og stendur fram eftir degi en síðan er slegið upp diskói og dansað til 20.
Að lokum skal þess getið í þessari annars alltof löngu færslu að foreldrar ættu að hafa fengið tölvupóst frá skólanum með ósk frá meistaranámsnema við Háskólann á Akureyri um þátttöku í könnun. Þetta var ekki í bréfinu en verður kannski í því næsta. Það kemur allavega örugglega annað bréf heim með nemendur innan skamms. Bréf sem þá kannski gleymist að draga upp og krumpast og þvælist innan um skólabækur í nokkra daga.