Það eru auðvitað alls ekki allir á Facebook (Fésinu) en það er engu síður að verða gott tæki til þess að ná og halda sambandi við aðra. Litlulaugaskóli er núna á Fésinu og hefur á skömmum tíma eignast um 100 “vini.” Þ.á.m. eru margir fyrrverandi nemendur og því hafa verið settar inn nokkrar gamlar ljósmyndir sem til voru hér í möppum og skúffum. Foreldrar, nemendur, starfsmenn, fyrrum nemendur og velunnarar skólans eru hvattir til þess að gerast “vinir” Litlulaugaskóla á Fésinu og fylgjast með.
Þá hefur Litlulaugaskóli um nokkurra ára skeið haldið úti sér vefalbúmi á netinu frekar enn að setja inn mikið af ljósmyndum beint inn á þetta vefsvæði. Hægt er að fara inn á og skoða ljósmyndirnar á því með því að smella á sérstaka þar til gerða krækju hægra megin á síðunni.