Hvað er einelti?
Einelti er endurtekið líkamlegt og/eða andlegt ofbeldi þar sem einn eða fleiri níðast á eða ráðast aftur og aftur á einhvern einstakling.
Andlegt einelti felst t.d. í því að:
- skilja einhvern útundan eða setja einhvern út í “kuldann” s.s. neita um aðgang að samfélagi jafningja,
- tala illa um einhvern, ógna eða hæða með orðum, niðrandi og særandi athugasemdir um viðkomandi (svipbrigði, andvörp, grettur, bendingar o.fl.),
- skemma eða eyðileggja reglubundið fyrir einhverjum, s.s. húfur, trefla, úlpur o.fl.
Líkamlegt einelti felst t.d. í því að:
- hrinda, sparka í, slá eða klípa einhvern,
- halda einhverjum föstum eða loka einhvern inni gegn vilja hans.
Svona vinnum við gegn einelti
Til að komast að því hvort einelti sé í skólanum:
- könnun um líðan er lögð fyrir nemendur a.m.k. einu sinni á ári (nafnleynd),
- starfsfólk er hvatt til að láta vita ef það hefur grun um að einelti sé í skólanum,
- nemendur eru hvattir til að tilkynna um einelti,
Við tökum á einelti með eftirfarandi hætti
- gerendur eru teknir í einstaklingsviðtöl,
- viðtalinu er fylgt eftir,
- stuðningsviðtöl við fórnarlambið,
- stuðningsviðtöl við gerandann.
- foreldraviðtöl.
Fyrirbyggjandi aðgerðir:
- vináttuæfingar,
- skólareglur,
- fræðsluefni,
- lífsleikni.