Misjafnt er hvernig fólk bregst við áföllum s.s fráfalli náins ættingja eða vinar. Almennt er viðurkennt að ekki eigi að láta eins og ekkert hafi gerst heldur gefa þeim sem hlut eiga að máli tækifæri til þess að syrgja og tíma til að vinna sig út úr því ferli. Það er mjög mikilvægt að skólanum sé tilkynnt ef nemandi verður fyrir einhverju áfalli. Verið er að vinna að áætlun sem unnið verður eftir ef áfall af þessu tagi verður í skólahverfinu. Formleg samskipti munu, við slíkar aðstæður, hvíla á skólastjóra og umsjónarkennara.