Endurmenntunaráætlun

Símenntun starfsmanna er forsenda góðs skólastarfs. Ætlast er til að starfsmenn sem sækja endurmenntun á vegum skólans segi samstarfsmönnum frá námskeiðinu á sérstökum fundum eða skili skólastjóra skýrslu sem aðrir starfsmenn hafa aðgang að. Þetta er gert m.a. til að miðla fróðleiknum til skólasamfélagsins og skapa þannig skilyrði til að festa jákvæðar breytingar í sessi.

Þörf fyrir námskeið er metin sameiginlega af starfsmönnum og skólastjóra með hliðsjón af endurmenntunaráætlun viðkomandi starfsmanns.

Dæmi um endurmenntun: Námskeið, fyrirlestrar, fundir og ráðstefnur og lestur bóka og tímarita er falla sérstaklega að þeim þáttum sem skilgreindir hafa verið í endurmenntunnaráætlun viðkomandi starfsmanns.

Leave a Reply