Til þessa hefur heildstætt mat á starfinu ekki farið fram, en unnið hefur verið að innra mati á ákveðnum þáttum skólastarfsins. Hluta þeirrar vinnu er unnt að fella undir það altæka mat sem hér er sett upp sem þriggja ára ferli.
Í stefnu Litlulaugaskóla er lögð áhersla á eftirtalin atriði; alhliða grunnmenntun, virðingu og ábyrgð einstaklingsins fyrir sjálfum sér og öðrum, mannúð og siðferðilega ábyrgð, glaðværð og umburðarlyndi.
Segja má að þessi stefna sé allvíðtæk, og marga þætti hennar er ekki unnt að mæla með áþreifanlegum hætti, þó teljum við að með því að meta eftirtalda þætti skólastarfsins náum við heildarmynd af starfinu og árangri þess:
- Nám og kennsla
- Líðan og samskipti (nemendur)
- Aðbúnaður (ytri)
- Skóli og heimili
- Samskipti og stjórnun á vinnustað
Áætlað er að þessir þættir verði allir metnir á þriggja ára tímabili. Námskrá sem og allt vinnulag innan skólans verður síðan endurmetið með hliðsjón af niðurstöðunum. Ábyrgðarmaður áætlunarinnar og matsvinnunnar er Baldur Daníelsson skólastjóri en allir kennarar skólans taka þátt í matsvinnunni sjálfri að ákveðnu marki.
Þau mælitæki sem stuðst er við eru:
- Matsforritið Glerverk, þar sem spurningar um viðhorf eru lagðar fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans, allt eftir því sem við á
- SVÓT-greining, þar sem starfsfólk skólans leitast við að greina m.a. styrkleika og veikleika í starfsemi skólans
- Ýmis gögn varðandi námsmat, s.s. niðurstöður úr prófum og skýrslur Námsmatsstofnunar.
Sjáfsmatsskýrsla verður unnin að lokinni hverri úttekt og verða niðurstöður kynntar starfsfólki skólans, foreldrum og sveitarstjórn, auk þess sem ákveðnir þættir kunna að verða til þess fallnir að kynna nemendum sérstaklega.