Bókasafn

Í sameiginlegu bókasafni Reykdæla og Litlulaugaskóla fer fram fjölþætt starfsemi. Þar er kennt alla daga vikunnar að einhverju leyti auk þess sem tölvuver skólans er staðsett þar, ennfremur er safnið vettvangur upplýsingaöflunar af margvíslegu tagi (internet, tímarit, bækur, mynddiskar). Safnið er því mikið umgengið og þar er mikið líf, en um leið skapast ákveðin hætta á einhverri óreiðu. Brýnt er að nemendur læri að umgangast safn sem þetta af þeirri reglusemi sem við á og líti á það sem uppsprettu fróðleiks en ekki rykfallin verðmæti.

Umsjón með safni Reykdæla hefur Gréta Ásgeirsdóttir en Aðalsteinn Már Þorsteinsson sinnir hluta skólans. Nemenda er heimilt að hafa í láni allt að 3 afþreyingarbækur í einu og skráning og skil skulu fara fram annað hvort hjá bókaverði eða undir umsjón kennara. Óheimilt er með öllu að fara með bækur út af safninu án þess að skrá þær á nafn.

Leave a Reply