Móttaka nýrra nemenda

Eftirfarandi á við um nemendur sem koma inn síðar en í 1. bekk:

Þegar nýr nemandi og þar með oft á tíðum nýtt heimili bætist í hópinn ber umsjónarkennara hans að hafa eftirfarandi atriði í huga og reyna tryggja að innan skólans séu aðrir starfsmenn og nemendur upplýstir og meðvitaðir um skyldur sínar gagnvart hinum nýja aðila/aðilum.

  • heimilið fær skólanámskrána afhenta
  • farin kynnisferð um skólann með alla fjölskylduna
  • fyrirkomulag skólaaksturs og mötuneyti kynnt
  • tryggja að nemandi viti hvernig hann fer í íþrótta- og sundtíma
  • bekkjarfélögum gerð grein fyrir ábyrgð þeirra á líðan nýs bekkjarfélaga og hugsanlega falin hlutverk í aðlögun nemandans og að kynna honum hefðir og fyrirkomulag innan skólans
  • fylgst með nýja nemandanum og rætt reglulega við hann um líðan hans
  • þess gætt að nemandinn og fjölskylda hans verði ekki utangátta þegar kemur að óhefðbundnum þáttum skólastarfsins s.s. litlu-jólum, föndurdegi, þorrablóti, árshátíð o.s.frv.

Mörg þessar ofangreindu atriða gilda einnig þegar nemandi kemur sem gestanemandi í einhverja daga eða vikur. Slíkir nemendur koma líka oft inn á miðju skólaári.

Leave a Reply