Mötuneyti

Allir nemendur eiga þess kost að borða hollan og góðan mat í skólanum. Reynt er að taka mið af ráðleggingum Manneldisráðs hvað varðar skólamötuneyti. Maturinn er seldur á efniskostnaðarverði og eru innheimtutímabilin 9 þ.e. hver starfsmánuður skóla. Þau börn sem ekki borða hádegisverð í skólanum að jafnaði geta fengið máltíðir í skólanum þegar foreldrar þeirra óska eftir því og þá þarf að hafa samband við ráðskonu eða skólastjóra daginn áður.

Leave a Reply