Sérkennsla – stuðningur

Sérkennsla er kennsla nemenda sem þurfa stuðning eða sérstök úrræði um lengri eða skemmri tíma, en þann stuðning er oft ekki unnt að veita innan ramma almennu kennslunnar. Tilgangur sérkennslunnar er að leitast við að mæta þörfum einstaklinga þannig að markmið grunnskólalaganna nái fram að ganga fyrir alla nemendur. Sérkennsla er skipulögð á grundvelli mats umsjónarkennara, hópprófa, greininga og mats frá Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga.

Leave a Reply