Útivist í morgunverðartíma í samráði við kennara. Í löngu frímínútunum er ætlast til að allir nemendur fari út. Í hádegisverðartíma og frímínútum eftir mat er æskilegt að nemendur fari a.m.k. og fái sér frískt loft. Nemendur eiga að vera á skólalóðinni og mæta til kennslustunda strax þegar bjöllu er hringt.
Lengi býr að fyrstu gerð. Hreyfing er okkur lífsnauðsynleg og á uppvaxtarárunum er að nokkru leyti hægt að byggja upp fyrir lífstíð. Á aldrinum 12 – 16 ára tekur hjarta og æðakerfi út fullan þroska og rannsóknir hafa sýnt að þeir einstaklingar sem eru í góðri þolþjálfun á þeim árum búa að því alla ævi. Þeir hafa það sem eftir er ævinnar betra þol (hjartað þarf að erfiða minna) og eru mun fljótari að koma sér í form en hinir. Einnig eru þeir sem stunda reglubundna líkamsrækt á þessum árum, líklegri til að halda því áfram eftir að skólaskyldu lýkur. Unglingar sem stunda líkamsrækt fara síður að reykja eða nota önnur vímu- eða ávanabindandi efni.
Æskilegt er að skólinn og heimilin taki höndum saman að hvetja nemendur til aukinnar hreyfingar hvort heldur er heima fyrir eða í skipulögðu íþróttastarfi.