Góður svefn

Svefninn er öllum manneskjum mikilvægur. Svefninn veitir hvíld og endurnýjar orku.

Góður svefn næst jafnan með heilbrigðum svefnvenjum og það er hlutverk foreldranna að leiðbeina börnum sínum um slíkt.  Mikilvægt er að hafa reglu á svefnvenjum og byrja á því sem fyrst.  Mælikvarði á gæði svefns er að við séum vel úthvíld að morgni og okkur líði vel yfir daginn.

Viðbrögð við svefnleysi eru mjög einstaklingsbundin, en algengt er að einkenni svo sem skortur á snerpu, úthaldi og einbeitingu geri vart við sig.

Svefnþörf barna er einstaklingsbundin. Ráðlagður svefntími er því alltaf viðmiðun og ef barn er mjög athafnasamt og hefur litla svefnþörf veldur það bara hamagangi og látum ef reynt er að þvinga það til að sofa meira en því er eðlilegt. En viðmiðunin er að börn 6-10 ára þurfi um 10-12 klst. svefn á hverri nóttu, en eldri skólabörn þurfi lágmark 9 klst. svefn til að vera hress á daginn.

Það er nauðsynlegt öllum skólabörnum að fara snemma að sofa á kvöldin þegar þau þurfa að fara snemma á fætur daginn eftir. Góður, langur og órofinn nætursvefn virðist stuðla að betri einbeitingu og hjálpa börnunum að byggja upp ónæmiskerfið til varnar ýmsum sjúkdómum.

Vaxtarhormón myndast í djúpum svefni fyrri hluta nætur og það er því ekki fyrra þegar sagt er að við stækkum mest meðan við sofum.

Mikilvægt er að eiga rólega notalega stund með barninu áður en farið er að sofa.  Misjafnt er hvað hverri fjölskyldu hentar en lestur/ söngur/sögur og bænir standa alltaf fyrir sínu og styrkja böndin milli foreldra og barna.  Oft eru þetta einnig einu rólegu stundirnar sem fjölskyldan á saman.

Sendum börnin okkar ekki grátandi í rúmið og bjóðum þeim góða nótt.

Leave a Reply