Þú ert það sem þú borðar

Börnum og unglingum er mjög mikilvægt að borða hollan og góðan mat. Jafnframt skiptir miklu máli að borða reglulega og missa ekki úr máltíð.  Börn eru í örum vexti og þurfa því kjarnmiklar máltíðir og fjölbreytta fæðu svo þau hafi næga orku til að geta þroskast og dafnað eðlilega. Heilbrigð og sterk bein, vöðvar, tennur og húð eru meðal annars háð góðri fæðu og árangur barna í námi og íþróttum tengist líka hollum matarvenjum.

  • Börn og unglingar þurfa að borða minnst fjórar máltíðir á dag, þ.e.a.s. morgunmat, hádegismat, miðdegishressingu og kvöldmat.
  •  Með morgunmatnum er mikilvægt að taka eina matskeið af lýsi, en það gefur mikið af D-vítamíni sem er eina vítamínið sem erfitt er að fá úr mat. D-vítamín er nauðsynlegt til að nýta kalk úr mjólkinni, en kalk er nauðsynlegt fyrir tennur og bein.
  • Börn á skólaaldri þurfa mikið kalk þannig að léttmjólk eða undanrenna er miklu betri kostur en sykraðir svaladrykkir.
  • Samkvæmt íslenskri könnun fær um fjórða hver unglingsstúlka minna en ráðlagðan skammt af kalki daglega. En það er mjög slæmt því bein kvenna missa meira kalk með aldrinum en bein karla.
  • Tvö til þrjú mjólkurglös á dag ásamt mjólk út á morgunkorn og osti á brauðið tryggja okkur nægilegt kalk.
  • Hreinir safar eru hollari en sykraðir drykkir, en þeir geta skemmt tennur engu síður en aðrir sætir drykkir.
  • Æskilegt er að borða daglega að minnsta kosti 5 skammta af grænmeti, ávöxtum og kartöflum, eða sem nemur einum til tveimur ávextum og minnsta kosti 100 gr. af grænmeti auk kartaflna.
  • Með hádegis- og kvöldmat á þriðjungur disksins að vera grænmeti, en þannig verður máltíðin trefjarík og auðug af bætiefnum.

Margir verða svangir og þyrstir milli máltíða, sérstaklega eftir leikfimi eða íþróttir.

  • Góðir millibitar eru t.d. ávextir, grænmeti, mjólkurglas, brauðsneið eða hrökkbrauð með áleggi. Allt þetta veitir okkur einnig nauðsynleg næringarefni.
  • Forðist hins vegar að velja kex, kökur eða sælgæti, slíkt gefur einungis orku, inniheldur mikinn sykur sem skemmir tennur.
  • Mikilvægt er að takmarka sælgætisneyslu við einn dag í viku, sælgætið á aldrei að koma í staðinn fyrir mat þegar við erum svöng.
  • Sykurinn úr sælgæti og sætum drykkjum fer hratt út í blóðið það verður mikil sveifla á blóðsykrinum og við verðum slappari og þreyttari eftir sykurátið. Borðum því mat þegar við verðum svöng og geymum sælgætið fyrir sérstök tilefni.
  • Vatn skemmir ekki tennur og er þar af leiðandi besti svaladrykkurinn sem við eigum.

Foreldrar þurfa að hafa í huga að eiga hollan og góðan mat í ísskápnum þegar börnin koma heim úr skólanum og venja þau á að fá sér brauð og ávexti seinni part dags í stað þess að opna kexpakka.

Munum að við erum það sem við borðum, í þeirri merkingu að öll efni mannslíkamans eru upprunnin úr fæðunni sem við borðum. Þau efni sem ekki eru í matnum okkar fær líkaminn ekki.

Leave a Reply