Samstarf heimila og skóla

Að mennta og ala upp barn er samstarfsverkefni heimilis og skóla. Samkvæmt lögum skal grunnskólinn vinna að því í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf. Frumábyrgð á uppeldi og menntun hvílir á foreldrum. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. Þetta kallar á mikla samvinnu heimilis og skóla, náin tengsl, gagnkvæmt traust, gagnkvæma upplýsingamiðlun og samábyrgð.

Starfsfólk Litlulaugaskóla vill leggja áherslu á gott samstarf við heimilin sem byggist m.a. á góðu boðskiptakerfi. Nemendur hafa heimavinnuáætlanir, þar er m.a. vettvangur til að skiptast á upplýsingum, auk þess sem möguleiki er á sérstökum samskiptabókum ef foreldrar óska þess. Hver umsjónarkennari er með auglýstan símatíma og hvetjum við foreldra til að nýta sér hann, en að sjálfsögðu er velkomið að hafa samband á öðrum tímum. Fréttabréf og dreifimiðar verða send heim með nemendum þegar á þarf að halda einnig er bent á heimasíðu Litlulaugaskóla þar sem hægt er að nálgast þessar upplýsingar auk annarra hagnýtra upplýsinga. Skipulögð foreldraviðtöl verða a.m.k. tvisvar á vetri ásamt foreldrafundum.

Mikilvægt er að heimilin láti vita í skólann ef einhverjar breytingar eða aukið álag er á nemanda eða fjölskyldu hans þannig að hægt sé að taka tillit til þess í skólanum.

Leave a Reply