Skólareglur og samskipti

Litlulaugaskóli er vinnustaður þar sem allir eiga rétt á að þeim líði vel. Þess vegna sýnum við hvert öðru tillitssemi í námi, leik og starfi með því að vera kurteis, hjálpsöm og leysa ágreiningsmál á jafnréttisgrundvelli og án ofbeldis.

  • Við göngum vel um húsnæði skólans, eigur hans, starfsmanna og nemenda.
  • Við erum stundvís, vandvirk og hirðusöm.
  • Við sýnum hvert öðru gagnkvæma virðingu og tillitssemi.
  • Við völdum ekki öðrum truflun eða óþægindum með framkomu okkar eða hátterni.

Umsjónarkennarar munu ræða við heimilin um leiðir til lausnar verði nemandi vís um brot á þessum reglum. Alvarleg og endurtekin brot geta leitt til brottvísunar úr skóla. Ef slíkt kæmi til yrði farið með málið samkv. 41. grein grunnskólalaga.

Leave a Reply