Stefna skólans

-Stefna skólans er, samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla, að veita nemendum alhliða grunnmenntun. Reynt er að skapa hverjum einstaklingi sem bestar aðstæður til þess að takast á við viðfangsefni á sínum forsendum.

-Stefna skólans er að styðja nemendur til þess, ásamt með heimilum þeirra, að læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu og um nauðsyn þess að bera ábyrgð á gerðum sínum og afleiðingum þeirra.

-Stefna skólans er að stuðla að þroska nemandans í átt til mannúðar og siðferðilegrar ábyrgðar sem þegn í samfélaginu og veita honum þá þekkingu og hæfni sem nauðsynleg er í lífinu.

-Stefna skólans er að skólastarfið einkennist af glaðværð og umburðarlyndi, byggi upp sjálfstraust nemenda og útskrifi skapandi einstaklinga.

Leave a Reply