Útivistardagur fjölskyldunnar

Sunnudaginn 25. mars kl. 13:00 og fram eftir degi, höldum við útivistardag fjölskyldunnar.
Við hittumst á Hólasandi (nánar tiltekið á Miðási sem er sunnan við Geitafell).
Að útivistardeginum standa foreldrafélög grunnskólanna í Þingeyjarsveit í samvinnu við björgunarsveitirnar.

Boðið er upp á smá hressingu en allir samt hvattir til þess að taka með sér nesti.
Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að mæta og skemmta sér í góðum hóp.

Sjáumst hress og kát í brekkunum,
Foreldrafélögin