Viðburðir á tímalínu

Í gær, miðvikudaginn 2. maí fengu nemendur bréf með sér heim úr skólanum. Þar koma fram ýmis atriði er varða skólastarfið fram í tímann. Íþróttatímar vetrarins á vegum Eflingar í íþróttahúsinu verða ekki fleiri en framundan er m.a. heimsókn frá veðurfræðingi og félagsstarf eftir skóla. Enn eru vikur í skólaslitin þó þeirra sé getið í bréfinu en upplýsingar um alla viðburðina má líka finna á dagatalinu hér til hliðar. Að lokum er rétt að nota tækifærið og minna sérstaklega á vortónleikana sem verða laugardaginn 12. maí nk. kl. 14.